Um er að ræða virkjun Keldnalækjar rétt fyrir ofan ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangár. Keldnalækur á upptök sín skammt frá bænum Keldum og rennur til suðurs þar sem hann sameinast Eystri – Rangá.

Virkjunin nýtir 40 metra fall og rennsli upp á 4,5 til 8,8 rúmmetra á sekúndu. Virkjunin er rennslisvirkjun með inntak rétt fyrir ofan ármót Keldnalækjar og Eystri-Rangár. Þaðan liggur 1360 metra löng pípa að stöðvarhúsi sunnan við Tunguheiði, þar sem sjá má á korti móta fyrir leifum af bænum Tungu.

Vegaslóðar sem þegar eru til staðar í landi Keldna verða styrktir til að þola þá þungaflutninga sem nauðsynlegir eru á byggingartíma.

Frárennsliskurður frá virkjuninni mun liggja samhliða Eystri – Rangá og sameinast henni rétt fyrir ofan náttúrulegar flúðir í ánni.

Hönnun virkjunarinnar miðar að því að fella hana sem best að landslagi og raska sem minnstu.

Stöðvarhúsið verður að hluta grafið inn í bakkann þar sem pípan kemur niður af Tunguheiði.

Öll mannvirki eru í landi Keldna.

Yfirlitsmynd yfir allar framkvæmdir vegna Tunguvirkjunar. Vegur að inntaki og stöðvarhúsi er blá brotin lína, pípan er rauð lína, stöðvarhús, inntak, frárennslisskuður og fráleggssvæði eru svört, leifar af bænum Tungu ásamt túngarði er appelsínugult og inntakslón virkjunar er ljósblátt.

Rannsóknir

Vorið 2025 hófust rannsóknir á vatnshlotum, gróðri, lífrík á áhrifasvæði virkjunarinnar og haustið 2025 mun fornleifaskráning fara fram.

Það er Náttúrufræðistofa Vestfjarða sem annast  allar rannsóknirnar. 

Þremur rannsóknum er lokið en niðurstaðna vegna Ferskvatnsrannsókna er að vænta er að vænta í ársbyrjun 2026 og Minnisblað um vöktun á efna- og eðlisfræðilegar gæðaþátta er væntanlegt vorið 2026.

Niðurstöður rannsókna sem liggja fyrir varða fugla, gróður og fornleifar.

Fuglaúttekt – Tunguvirkjun

Gróðurrannsóknir – Tunguvirkjun 

Fornleifaskráning – Tunguvirkjun

Ferskvatnsrannóknir – Tunguvirkjun

Skipulag

Sveitarfélagið Rangárþing ytra hefur tekið til meðferðar aðal- og deiliskipulagsbreytingar vegna virkjunarinnar.

Gert er ráð fyrir því að virkjunin geti orðið allt að 3 megavött að uppsettu afli og geti framleitt um 19 gígavattstundir af raforku á ári.

Virkjunin mun tengjast dreifikerfi RARIK um 11 kílóvolta streng.

Sveitarstjórn hefur samþykkt skipulagslýsingu vegna virkjunarinnar og er skipulagslýsingin nú aðgengileg í skipulagsgátt á vefsíðu Skipulagsstofnunar 

Skipulagsgáttin – Tunguvirkjun

Veðurstofa Íslands hefur tekið myndir af Tungufossi með mismunandi miklu rennsli.

Myndir af fossinum með mismiklu rennsli má sjá hér.

Tungufoss með mismunandi rennsli