AFL OG ORKA
- Afl og Orka í eigu Rafal og HS Orku
- Rafal er eitt stærsta og rótgrónasta rafverktakafyrirtæki á íslandi með yfir 150 starfsmenn.
- HS Orka er þriðja stærsta orkufyrirtækið á markaði á Íslandi. Fyrirtækið rekur Jarðvarmavirkjanirnar Reykjanesvirkjun og Svartsengi auk Brúarvirkjunar, Bjólfs- og Gúlsvirkjunar.
- Afl og Orka var stofnað í júní 2024 og hyggst reisa og reka litlar vatnsaflsvirkjanir um allt land.
Stjórn Afl og Orku
Friðrik Friðriksson Ingibjörg Ólafsdóttir
Stjórnarformaður Meðstjórnandi
Gildi Afl og Orku
Ábyrgð
Afl og Orka leggur ríka áherslu á að ganga fram í öllum sínum verkefnum af ábyrgð gangvart umhverfi, náttúru, hagsmunum landeigenda, og sveitarfélögum. Við tökum samfélagslega ábyrgð alvarlega og viljum skapa traust í nærsamfélaginu með því að ganga vel um náttúru og menningarleg verðmæti. Við teljum að virkjanir á okkar vegum muni auka möguleika til atvinnuuppbyggingar, orkuskipta og orkuöryggis um land allt. Með þessu móti aukum við svæðisbundna tekjumöguleika til langrar framtíðar.
Fagmennska
Við leitum ráðgjafar hjá færustu sérfræðingum á hverju sviði og leggjum áherslu á að ganga vel um land og koma mannvirkjum þannig fyrir að þau valdi sem minnstu raski, bæði á byggingartíma og eftir að rekstur er hafinn. Við munum leitast við að færa allt umhverfi eins nálægt upprunalegu horfi og nokkur kostur er að framkvæmdum loknum og munum fylgjast með því að svæði sem þurfi að raska á framkvæmdatíma grói aftur og verði nánast eins og ósnortin.
Lipurð
Það er metnaður Afl og Orku að verða besti mögulegi samstarfsaðili landeigenda sem vilja nýta vatnsréttindi sín. Við munum leggja áherslu á að þróa virkjunarkostina í nánu samráði við landeigendur og nærsamfélag og alla hagsmunaaðila. Við viljum leggja fram allar tiltækar upplýsingar eins snemma í þróunarferlinu og kostur er og fögnum opnu samtali um það sem betur má fara og lofum því að hlusta og skoða hvort hægt er að koma til móts við fjölbreytt sjónarmið.
Sjálfbærnistefna Afl og Orku
Sjálfbærnistefna
Umhverfis- og sjálfbærnistefna Afl og Orku tekur til allrar starfsemi fyrirtækisins. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á gerð, viðhaldi og kynningu á sjálfbærnistefnu Afl og Orku.
Sjálfbærni er forsenda fyrir velferð Afl og Orku og við leggjum áherslu á að vera í fararbroddi orkufyrirtækja í þessum málaflokki. Afl og orka mun ætíð hafa vernd umhverfisins að leiðarljósi og koma í veg fyrir að mengun berist frá starfsemi félagsins.
Samfélag án sóunar
Afl og Orka leitar allra leiða til útrýma sóun í starfseminni. Það er okkur kappsmál að sú orka sem leyst er úr læðingi sé nýtt með sjálfbærni að leiðarljósi og skili fjölbreyttum verðmætum bæði til landeigenda og nærsamfélags virkjana félagsins.
Ábyrg nýting auðlinda
Ábyrg nýting endurnýjanlegra auðlinda er undirstaða árangurs Afls og Orku til lengri tíma. Með ítarlegum rannsóknum og undirbúningi byggjum við ákvarðanir um framleiðslu á bestu mögulegu gögnum og með hliðsjón af markmiðum fyrirtækisins um sjálfbæra og hagkvæma nýtingu auðlinda.
Loftslagsmál
Með því að reisa og reka vatnsaflsvirkjanir aukum við framboði á umhverfisvænni orku og auknu orkuöryggi. Einnig stuðlar Afl og Orka að möguleikum hinna dreifðari byggða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Orkuskipti
Kjarnastarfsemi Afl og Orku gengur út á að nýta endurnýjanlega orku til framleiðslu á rafmagni og auka orkuöryggi út um land. Rafmagnsframleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum er undirstöðuatriði orkuskipta bæði hérlendis og á heimsvísu. Við vinnum ötullega að þróun núverandi starfsemi sem og framgangi nýrra verkefna til að tryggja næga orku fyrir sjálfbærara samfélag til framtíðar.
Líffræðilegur fjölbreytileiki og menningarverðmæti
Með gagngerum rannsóknum á náttúru og umhverfi í undirbúningsvinnu vegna byggingu á nýjum vatnsaflsvirkjunum skapast grundvöllur til að skilja áhrif starfsemi Afl og Orku á náttúruna. Við skiljum virði líffræðilegs fjölbreytileika og gildi hans fyrir samfélagið. Það á bæði við um vistfræðilegt mikilvægi hans og hin fjölþættu hagrænu verðmæti sem felast í þjónustu vistkerfa (e. ecosystem services). Afl og Orka grípur til viðeigandi ráðstafana og skilvirkra mótvægisaðgerða, með hliðsjón af starfsemi fyrirtækisins, til að vernda heilbrigði og fjölbreytni vistkerfa auk menningarverðmæta.
Mannauður og jafnrétti
Gildi Afl og Orku eru Ábyrgð – Fagmennska og Lipurð. Þessi gildi eru höfð að leiðarljósi í allri starfsemi fyrirtækisins, á vinnustaðnum og samskiptum við alla hagaðila. Við setjum skýr markmið um árangur þegar kemur að jafnrétti, fjölbreytni, starfsþróun og starfsánægju.
Öryggismál og vinnuumhverfi
Við viljum vera í forystu þegar kemur að öryggismenningu og vinnuvernd. Við setjum skýr og krefjandi markmið og leggjum áherslu á öryggisvitund og samvinnu allra aðila sem tengjast verkefnum okkar. Við viljum tryggja öryggi á athafnasvæðum fyrirtækisins, bæði á verktíma og þegar rekstur er hafinn. Öll frávik í öryggismálum fá skýra meðhöndlun og verklag er endurskoðað með reglubundnum hætti til að tryggja fagmennsku, áreiðanleika og framfarir. Fræðsla, gagnsæi, upplýsingagjöf og fyrirbyggjandi aðgerðir eru lykilþættir til að tryggja virkni öryggisreglna meðal starfsfólks, verktaka og þjónustuaðila.
Upplýsingagjöf og samskipti
Við leitumst við að skilja væntingar og viðhorf ólíkra hagaðila til starfsemi fyrirtækisins. Í því felst að við eigum vönduð samskipti við nærsamfélag, almenning, stjórnvöld, eftirlitsaðila, félagasamtök og viðskiptavini. Með skilningi á starfsumhverfi fyrirtækisins aukum við gæði ákvarðanatöku og greinum tækifæri til framfara. Afl og Orka miðlar reglubundið upplýsingum um stjórnarhætti og áhrif fyrirtækisins á umhverfi, samfélag og efnahag.
Þátttaka í samfélaginu
Afl og Orka leggur sig fram um að hafa margvísleg jákvæð áhrif á nærsamfélag virkjana sinna og að vera framfaraafl fyrir dreifðari byggðir og efnahagslíf út um land.
Stjórnkerfi
Stjórnkerfi Afl og Orku miðar við að ná stöðugum framförum og leita sífellt nýrra leiða til að bæta verklag og yfirsýn.
Aðföng og aðkeypt þjónusta
Almennt gildir að birgjar þurfa að standast sömu kröfur og tryggja sömu réttindi og gilda um Afl og Orku. Í samræmi við það gerum við skýrar kröfur þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum. Gerðar eru kröfur til birgja og verktaka með hliðsjón af ábyrgð fyrirtækisins í mannréttindum og vinnuvernd. Við framkvæmum birgjamat á lykilbirgjum okkar og grípum til viðeigandi aðgerða ef starfsemi birgja samræmist ekki kröfum okkar.